Forsíða Fréttasafn ÍBR Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir um helgina
Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir um helgina Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 17. janúar 2012 10:51

Um helgina fara Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) fram í Laugardalnum og nágrenni. Þetta er í fimmta sinn sem leikarnir fara fram en það eru Íþróttabandalag Reykjavíkur, íþróttafélögin í Reykjavík og nokkur sérsambönd ásamt dyggum samstarfsaðilum sem standa að leikunum.

Á Reykjavíkurleikunum 2012 er keppt í 16 mismunandi íþróttagreinum en þær eru bogfimi, frjálsar íþróttir, badminton, keila, dans, skylmingar, listhlaup á skautum, fimleikar, júdó, ólympískar lyftingar, kraftlyftingar, sund, sund fatlaðra, skvass, borðtennis og þríþraut.

Það er frábær skemmtun fyrir íþróttaáhugafólk að koma við á keppnisstöðunum sem flestir eru í Laugardalnum og nágrenni og fylgjast með spennandi keppni. Íþróttafólkið sem tekur þátt er frá 20 löndum auk íslenskra þátttakenda.

Smellið hér til að skoða dagskrá mótsins.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 17. janúar 2012 10:55
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700