| Ráðstefna um afreksþjálfun 19.janúar |
|
|
| Miðvikudagur, 11. janúar 2012 10:30 |
|
Í tilefni af fimmtu Reykjavíkurleikunum og 100 ára afmæli ÍSÍ munu Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Fyrirlestrarnir munu fara fram í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 19.janúar. Ráðstefnan hefst kl.18:00 og lýkur kl.21:00. Þrír mjög áhugaverðir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi um afreksþjálfun en ráðstefnustjórar verða þau Þórdís Gísladóttir, sviðsstjóri íþróttafræðasviðs HR, og Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. Fyrirlestrarnir fara allir fram á ensku. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um ráðstefnuna og fyrirlesarana. Ráðstefnugjald er kr. 1.500,- og er innifalið í gjaldinu léttur kvöldverður sem borinn verður fram um kl.19. Skráning fer fram á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og greiðist ráðstefnu gjaldi við komu. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 17.janúar. Vakinn er athygli á því að hámarksfjöldi á ráðstefnuna er 120 manns. |