Forsíða Fréttasafn ÍBR Skyndihjálparnámskeið 25.janúar
Skyndihjálparnámskeið 25.janúar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 06. janúar 2012 15:43

Íþróttabandalag Reykjavíkur bauð aðildarfélögum sínum að senda fulltrúa á skyndihjálparnámskeið í lok desember. Skráning var mjög góð og komust færri að en vildu. Því hefur verið ákveðið að halda annað námskeið.

Haldið verður skyndihjálparnámskeið miðvikudaginn 25.janúar kl.18:00-22:00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal sem er opið öllum aðildarfélögum ÍBR. Leiðbeinendur koma frá Rauða krossi Íslands en nánari lýsingu á námskeiðinu má finna með því að smella hér.

ÍBR greiðir niður kostnað við námskeiðið og verður hlutur félagsins aðeins 1.000 kr á hvern þátttakanda. Við hvetjum félögin eindregið til að senda þjálfara, starfsmenn mannvirkja, liðstjóra o.fl. á námskeiðið enda kemur skyndihjálp öllum að góðum notum sama hvar þeir starfa.

Skrá þarf fulltrúa félaganna á námskeiðið í síðasta lagi fimmtudaginn 12.janúar. Hvert félag þarf að senda inn upplýsingar um nöfn, netföng og starfsheiti þátttakenda á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Athugið að hámarksfjöldi á námskeiðið er 60 manns og gildir því reglan fyrstir koma fyrstir fá.

Félög verða skuldfærð eða þeim sendur reikningur fyrir kostnaði síns fólks viku fyrir námskeiðið. Námskeiðsgjaldið verður ekki endurgreitt vegna forfalla.


Myndin var tekin á skyndihjálparnámskeiði ÍBR í desember.

Síðast uppfært: Föstudagur, 06. janúar 2012 15:48
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700