Forsíða Fréttasafn ÍBR Íþróttamaður Reykjavíkur 2011 er Hrafnhildur Skúladóttir
Íþróttamaður Reykjavíkur 2011 er Hrafnhildur Skúladóttir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 04. janúar 2012 15:10

Íþróttamaður Reykjavíkur 2011 er handknattleikskonan Hrafnhildur Skúladóttir úr Knattspyrnufélaginu Val.

Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhendi Hrafnhildi verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Hún fékk af þessu tilefni farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.

Hrafnhildur fór fyrir liði Valsmanna sem urðu Íslands- og deildarmeistarar kvenna í handknattleik á árinu. Hún lék einnig stórt hlutverk í kvennalandsliði Íslands sem náði 12. sætinu á heimsmeistaramótinu í Brasilíu. Hrafnhildur er landsleikjahæsti og markahæsti leikmaður kvennalandsliðsins í handknattleik.

Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 33. sinn sem Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn. Smellið hér til að skoða lista yfir Íþróttamenn Reykjavíkur frá upphafi.


Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn á árinu 2011 í Höfða í dag sem afhendar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:

  • Ásdís Hjálmsdóttir, Glímufélaginu Ármanni 
  • Ásgeir Sigurgeirsson, Skotfélagi Reykjavíkur
  • Eygló Ósk Gústafsdóttir, Sundfélaginu Ægi
  • Hafþór Harðarson, Íþróttafélagi Reykjavíkur
  • Hannes Þór Halldórsson, Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
  • Jón Margeir Sverrisson, Fjölni og Íþróttafélaginu Ösp
  • María Guðsteinsdóttir, Glímufélaginu Ármanni
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur
  • Ragna Ingólfsdóttir, Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur
  • Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur

Smellið hér til að fá upplýsingar um árangur ofangreindra íþróttamanna á árinu 2011 en þau hlutu öll 50.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og viðurkenningarskjöld í Höfða í dag.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. janúar 2012 17:25
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700