Forsíða Fréttasafn ÍBR Íþróttamaður Reykjavíkur kjörinn á morgun
Íþróttamaður Reykjavíkur kjörinn á morgun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 03. janúar 2012 15:26

Ellefu íþróttamenn hafa verið tilnefndir vegna kjörs íþróttamanns Reykjavíkur sem fram fer á morgun miðvikudaginn 4.janúar kl.16:00 í Höfða. Íþróttamennirnir ellefu fá viðurkenningu fyrir frábæran árangur á árinu og mun einn af þeim hljóta útnefninguna Íþróttamaður Reykjavíkur 2011.

Tilnefndir íþróttamenn eru eftirfarandi í stafrófsröð:

  • Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari frá Ármanni en hún varð m.a. þrettánda á HM í Daegu og er eini Íslendingurinn sem hefur gott sem tryggt sig inn Ólympíuleikana í London á næsta ári.
  • Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður frá Skotfélagi Reykjavíkur en hann varða m.a tólfti á heimsbikarmótinu í Kóreu og 23ji á Evrópumeistaramótinu.
  • Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona frá Sundfélaginu Ægi átti stigahæsta sund íslenskra kvenna á árinu og varð í 2. sæti á Evrópumeistarmóti ungmenna.
  • Hafþór Harðarson, keilari frá ÍR sem varð í 3. sæti á Evrópumóti landsmeistara.
  • Hannes Þór Halldórsson, knattspyrnumaður frá KR varð bæði Íslands- og bikarmeistari ásamt því að vera valinn bestur á lokahófi KSÍ.
  • Hrafnhildur Skúladóttir, handknattleikskona frá Val sem fór fyrir Íslands- og deildarmeisturum Vals og íslenska kvennalandsliðinu á heimsmeistaramótinu í Brasilíu.
  • Jón Margeir Sverrisson, sundmaður frá Fjölni og Ösp sem náði 4. sæti á Evrópumeistaramótinu og er eini Íslendingurinn sem hefur tryggt sér þátttökurétt á Ólympíumóti fatlaðra í London.
  • María Guðsteinsdóttir, kraflyftingakona frá Ármanni sem náði 13. sæti á heimsmeistaramótinu ásamt því að setja Íslandsmet í öllum greinum kraftlyftinga á árinu.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur frá Golfklúbbi Reykjavíkur sem varð Íslandsmeistari í holukeppni, höggleik og sveitakeppni GSÍ. 
  • Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona frá TBR sem sigraði Iceland International í fimmta sinn í röð, varð í 2. sæti í tveimur stigamótum Alþjóða badmintonsambandsins, komst í 8 manna úrslit á þremur og í 16 manna úrslit í fimm mótum. 
  • Þormóður Jónsson, júdómaður frá Júdófélagi Reykjavíkur sem varð í 2.-7. sæti á þremur heimsbikarmótum Alþjóða júdósambandsins.

Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 33. sinn sem Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn. Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2011 fær til varðveislu farandbikar og eignarbikar ásamt 150.000 kr styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700