Forsíða Fréttasafn ÍBR Skyndihjálparnámskeið 28.desember
Skyndihjálparnámskeið 28.desember Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 28. nóvember 2011 00:00

Íþróttabandalagi Reykjavíkur stendur fyrir skyndihjálparnámskeiði fyrir aðildarfélög sín miðvikudaginn 28.desember kl. 16:30-20:30 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. ÍBR greiðir niður kostnað við námskeiðið og verður hlutur félaganna aðeins 1.000 kr á hvern þátttakanda.

Öll aðildarfélög eru hvött til að senda þjálfara, starfsmenn mannvirkja, liðstjóra o.fl. á námskeiðið enda kemur skyndihjálp öllum að góðum notum sama hvar þeir starfa.

Skrá þarf fulltrúa félaganna á námskeiðið í síðasta lagi fimmtudaginn 15.desember. Hvert félag þarf að senda inn upplýsingar um nöfn og starfsheiti þátttakenda á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Í kjölfarið verður sendur reikningur á félagið sem þarf að greiða viku fyrir námskeiðið til staðfestingar á skráningu.

Þátttakendafjöldi er takmarkaður og því gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá.

Leiðbeinendur frá Rauða Krossi Íslands sjá um kennslu á námskeiðinu og má sjá nánari lýsingu með því að smella hér.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. nóvember 2011 09:53
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700