Forsíða Fréttasafn ÍBR Sundfólk stendur sig vel
Sundfólk stendur sig vel Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 29. nóvember 2011 08:41

Um helgina tóku 19 unglingar úr Reykjavík, á vegum sundráðs Reykjavíkur, þátt í sundmóti í Köge í Danmörku. Alls tóku 440 keppendur frá Danmörku og Svíþjóð þátt í mótinu. Reykvísku unglingarnir unnu til 17 gullverðlauna, sex silfurverðlauna og þrennra bronsverðlauna auk þess sem þeir settu nokkur mótsmet.

Rebekka Jaferian setti mótsmet í 800 m skriðsundi og sigraði einnig í 400 m skriðsundi. Paulina Lazorikova fékk gull í 200 m flugsundi, 400m fjórsundi og 200 m fjórsundi. Hún varð í öðru sæti í 100 m flugsundi.

Íris Emma Gunnarsdóttir nældi í þrenn verðlaun. Hún hlaut gull í 100 m fjórsundi og brons í 50 m og 100 m bringusundi.

Kristinn Þórarinsson varð í fyrsta sæti í 50 m, 100 og 200 m baksundi, 100m fjórsundi, 50m flugsundi, 100m skriðsund í 200 m fjórsund mótsmet. Hann setti ennfremur mótsmet í 200 m baksundi, 100 m fjórsundi, 50 m flugsundi og 200 m fjórsundi.

Hilmar Smári Jónsson varð í fyrsta sæti í 400 m og 800m skriðsundi og setti mótsmet í lengra sundinu. Þá hlaut hann brons í 100 m skriðsundi á tímanum 55,30 sek.

Steingerður Hauksdóttir fékk silfur í 50 m baksundi. Birta Lind Hallgrímsdóttir varð í öðru sæti með silfur í 200m flugsundi. Kolbrún Jónsdóttir sigraði í 100 m skriðsundi og 50 m bringusundi og fékk silfur í 100 m bringusundi, 50 m skriðsund og 200 m skriðsundi.

Teitur Hinrichsen fékk brons í 200 m flugsundi. Rannveig Rögn Leifsdóttir vann gull í 50 m baksundi. Stelpnasveitin varð svo í fyrsta sæti í 4x50m fjórsundi en sveitina var skipuð Steingerði Hauksdóttur (Fjölni), Kolbrúnu Jónsdóttur (KR), Rannveigu Rögn Leifsdóttur (KR) og Írisi Emmu Gunnarsdóttur (Ægi).

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. nóvember 2011 09:54
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700