| Ferðastyrkir 2011 |
|
|
| Föstudagur, 11. nóvember 2011 09:53 |
|
Búið er að opna umsóknarsvæði fyrir ferðastyrki vegna ferða innanlands á árinu 2011. Hægt er að sækja um á vefslóðinni ferdastyrkir.isi.is/ibr. Öll íþróttafélög í landinu geta sótt um ferðastyrki til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á áðurnefndu vefsvæði. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur samið við ÍSÍ um að fá aðgang að umsóknum íþróttafélaganna í Reykjavík til að minnka vinnu félaganna við að sækja um ferðastyrki. Umsóknir sem þarna eru settar inn berast því bæði til ÍSÍ og ÍBR. Byrja þarf á því að stofna umsókn fyrir félagið eða deildina og síðan er hægt að byrja að færa inn ferðir. Aðeins er tekið á móti umsóknum á þessu vefsvæði og er umsóknarfrestur til og með mánudagsins 8.janúar 2012. |