Forsíða Fréttasafn ÍBR 4.bekk boðið á skauta
4.bekk boðið á skauta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 01. nóvember 2011 00:00

Undanfarin sjö ár hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur gefið börnum í grunnskólum Reykjavíkur íþróttagjafir. Börn í 2. bekk hafa fengið sippuband, börn í 3. bekk bolta, 4. bekk hefur verið boðið á skauta og börnum í 5.bekk í sund. Skautaboðsmiði hefur verið gefinn í tengslum við fyrsta vetrardag og aðrar gjafir í tengslum við sumardaginn fyrsta. Tilgangurinn er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt.

Þessa dagana eru nemendur í 4.bekk grunnskólanna í Reykjavík að fá afhenda Vetrargjöfina sína sem er boðsmiði á skauta. Vetrargjöfin er gefin af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og skautahöllunum í Reykjavík. 

Boðsmiðanum sem nemendur fá afhenda fylgir lítill bæklingur í A5 broti um skauta og skautaíþróttir. Boðsmiðinn gildir í Skautahöllinni í Laugardal og á Skautasvellinu í Egilshöll í nóvember og er leiga á skautum og hjálmi innifalin.

Í Reykjavík eru um 1.350 nemendur í 4.bekk og er það von Íþróttabandalags Reykjavíkur að sem flestir þeirra geti nýtt sér boðsmiðann og skelli sér á skauta í nóvember.

Síðast uppfært: Mánudagur, 31. október 2011 15:41
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700