Forsíða Fréttasafn ÍBR Skautaæfingar fyrir fatlaða
Skautaæfingar fyrir fatlaða Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 11. október 2011 12:07

Íþróttafélagið Ösp, býður upp á 10 vikna skautanámskeið fyrir fatlaða og þroskahamlaða einstaklinga í Skautahöllinni í Laugardal frá og með 9.október 2011. Kennt er eftir alþjóðlegum áfangamarkmiðum Special Olympics hreyfingarinnar þar sem einstaklingurinn er í fyrirrúmi.

Helga Olsen leiðir hóp reyndra þjálfara sem bjóða upp á metnaðarfullar, fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar fyrir fatlaða og þroskaskerta einstaklinga frá 6 ára aldri.

Flokkar eru aldurs og getuskiptir. 6-10 ára æfa á þriðjudögum kl.17:30-19:10 og 11 ára og eldri æfa á sunnudögum kl.19:30-21:15.

Nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700