| Kynningarrit um íþrótta- og félagsstarf í Reykjavík |
|
|
| Miðvikudagur, 21. september 2011 10:49 |
|
Finna má öll íþróttafélög í Reykjavík í ritinu í stafrófsröð. Hjá hverju félagi koma fram helstu grunnupplýsingar eins og aðsetur, símanúmer, netföng og heimasíður. Þeir sem hafa ákveðna íþróttagrein í huga og vilja vita hvar er hægt að iðka hana geta flett upp á opnu með yfirliti yfir allar þær greinar sem hægt er að iðka í borginni. Þá eru einnig kort af hverfum borgarinnar með upplýsingum um staðsetningu og æfingastaði íþróttafélaganna. Allur almennur texti í ritinu og upptalning á íþróttagreinum er á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, pólsku og tælensku. Öll grunnskólabörn í borginni fá blað með sér heim næstu daga þar sem kynningarritið er kynnt og bent á hvar má nálgast vefútgáfu þess hér á www.ibr.is. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 21. september 2011 14:16 |