| Reykvíkingar náðu mjög góðum árangri á Alþjóðaleikum |
|
|
| Sunnudagur, 07. ágúst 2011 22:43 |
|
Í morgun hélt reykvíska liðið í frjálsum áfram á sömu braut og verið hefur þar sem að strákarnir lokuðu mótinu með því að fá silfurverðlaun í 4 x 100 m boðhlaupi. Þeir hlupu á tímanum 47,27 sekúndum. Stelpurnar hlupu á 52,69 sekúndum og höfnuðu í 5. sæti í hlaupinu. Jón Gunnar vann svo til bronsverðlauna í hástökki þegar hann fór yfir 1,75 m sem er persónuleg bæting hjá honum. Það má með sanni segja að Reykjavíkurunglingarnir í frjálsum hafi heldur betur slegið í gegn í frjálsíþróttakeppninni en þau unnu tvenn gullverðlaun, ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Það voru aðeins Reykjavík og Singapore sem náðu tveimur gullverðlaunum í frjálsum og Reykjavík og Lanarkshire voru þær tvær borgir sem unnu til flestra verðlauna í frjálsíþróttakeppninni með fimm verðlaun hvor borg. Þetta er besti árangur sem frjálsíþróttalið frá Reykjavík hefur náð í þessari keppni frá því Reykjavík hóf þátttöku fyrir um 10 árum. Það verður að viðurkennast að heildarárangur reykvíska hópsins hefur farið langt fram úr væntingum þjálfara og þeirra sem að þeim standa. Það er enginn vafi að reynslan af því að keppa í Skotlandi mun hjálpa keppnisfólkinu í framtíðinni og það kæmi aðstandendum ekki á óvart að sjá margt þessarra ungmenna á stórmótum eins og Ólympíuleikum í framtíðinni. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 08. ágúst 2011 09:40 |