| Einstakur árangur á Alþjóðaleikum |
|
|
| Laugardagur, 06. ágúst 2011 19:58 |
|
Reykvíska liðið átti mjög góðu gengi að fagna í dag. Í sundinu sigraði Kristinn Þórarinsson 100 metra baksundið og lenti þar aða auki í 5. sæti í 100m skriðsundi. Rebekka Jaferian, Paulina Lazorikova og Snær Jóhannsson bættu öll sína bestu tíma í sínum sundum. Í frjálsunum sigraði Hilmar Örn Jónsson í kúluvarpi með miklum yfirburðum. Hann kastaði kúlunni 16,52 metra. Aníta Hinriksdóttir sigraði í 800 m hlaupinu á 2:10,10 mín sem er bæting hjá henni. Hanna Þráinsdóttir vann til bronsverðlauna í hástökki. Gunnar Ingi varð 6. sæti hljópí úrslitum í 100 metra hlaupinu á 11,81 sekúndu og bætti þar með sinn besta árangur.
Glæsilegur árangur hjá okkar unga og frábæra íþróttafólki. |
| Síðast uppfært: Laugardagur, 06. ágúst 2011 20:52 |