| Silfur í júdó og sundi |
|
|
| Föstudagur, 05. ágúst 2011 22:03 |
|
Júdókapparnir Roman Rumba og Logi Haraldsson komust báðir í úrslitaglímur í keppni dagsins í sínum þyngdarflokkum en töpuðu gegn gríðarsterkum andstæðingum. Keppnin var hörð og því mikið afrek að hljóta annað sætið. Í sundinu þá tók Kristinn Þórarinsson sig til og varð annar í 200 metra baksundi og fjórði í 50 metra baksundi. Einnig komst Paulina Lazorikova í úrslit í 200 metra flugsundi og endaði í áttunda sæti. Aðrir keppendur stóðu sig vel en komust ekki í úrslit í mjög sterku sundmóti. Í badmintoninu náði okkar fólk sér ekki í strik og komust ekki í úrslit í mjög erfiðu móti. Vonir standa til að betur gangi í einstaklingskeppninni á morgun. Í frjálsunum hljóp Gunnar Ingi Harðarson 100m spretthlaup á 11,94 sekúndum í -1,3vindi og komst í A-úrslit en þau skipa 8 bestu keppendurnir. Hanna Þráinsdóttir stökk yfir 1,55 og er þar með komin í úrslit í hástökki. Hilmar Örn Jónsson er einnig kominn í úrslit í kúluvarpi en hann kastaði 14,41 metra. Í 800 m hlaupinu hljóp Anita Hinriksdóttir á 2:14,02 mín og er komin í A-úrslit með besta tíma allra í undanrásum. Úrslitin í frjálsunum fara fram á morgun. Annars er allt gott að frétta af okkar fólki en deginum lauk í dag með stórskemmtilegri TIVOLÍ ferð! |
| Síðast uppfært: Laugardagur, 06. ágúst 2011 18:59 |