|
Alþjóðaleikar ungmenna 2011 |
|
|
|
Föstudagur, 05. ágúst 2011 21:41 |
|

Átján 14 og 15 ára unglingar taka þessa dagana þátt í International Childrens Games fyrir hönd Reykjavíkurborgar en leikarnir fara fram í Lanarkshire í Skotlandi 4.-7. ágúst. Lið hafa verið send út á leikana frá árinu 2001 en leikarnir eru viðurkenndir af Alþjóða Ólympíunefndinni. Í stað þess að keppa fyrir félagslið eða fyrir hönd þjóðar sinnar þá keppa unglingarnir undir merkjum Reykjavíkurborgar.
Til fararinnar voru valdir:
FRJÁLSAR: Anita Hinriksdóttir Thelma Lind Kristjánsdóttir Bogey Ragnheiður Leósdóttir Hanna Þráinsdóttir Jón Gunnar Björnssoni Gunnar Ingi Harðarson Kristinn Héðinsson Hilmar Örn Jónsson Þjálfari liðsins er Hörður Grétar Gunnarsson, ÍR.
BADMINTON: Daníel Jóhannesson Stefán Ás Ingvarsson Sigríður Árnadóttir Jóna Kristín Hjartardóttir Þjálfari liðsins er Árni Hallgrímsson, TBR.
JUDO: Roman Rumba Logi Haraldsson Þjálfari liðsins er Bjarni Skúlason, Ármanni.
SUND: Rebekka Jaferian Paulina Lazorikova Kristinn Þórarinsson Snær Jóhannsson Þjálfari liðsins er Þuríður Einarsdóttir, Ármanni.
Aðalfararstjóri í ferðinni er Þórdís Gísladóttir, stjórnarmaður í stjórn ÍBR. Krakkarnir hófu keppni í morgun.
Allar upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu þess.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 08. ágúst 2011 09:57 |