| Stór dagur í íþróttasögu Íslands |
|
|
| Miðvikudagur, 29. júní 2011 06:30 |
|
29.júní 1951 er stór dagur í íþróttasögu Íslands en í dag eru einmitt liðin 60 ár frá þessum sögufræga degi. Þennan dag unnu bæði íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum og knattspyrnu glæsta sigra. Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætti Svíum á Melavellinum þennan dag þar sem Ísland sigraði 4-3. Ríkarður Jónsson skoraði 5 mörk í leiknum en eitt var dæmt af. Leiknum var lýst beint í útvarpinu en það voru þeir Sigurgeir Guðmannsson og Steinn Steinsson sem lýstu leiknum. Fyrir leikinn var talið mjög ólíklegt að Ísland ætti möguleika á sigri gegn sterku landsliði Svía. Leikurinn var liður í undirbúningi Svía fyrir Ólympíuleikana í Helsinki 1952. Sama dag réðust úrslit í þriggja landa keppni í frjálsum íþróttum á Bislet í Osló. Íslenska landsliðið stóð sig frábærlega í keppninni og sigraði bæði Norðmenn og Dani. Sagan segir að fögnuður áhorfenda á Melavellinum hefði verið svo mikill þegar tilkynnt var um sigur frjálsíþróttalandsliðsins að hrópin hefðu heyrst alla leið upp í Elliðaárdal. |