Forsíða Fréttasafn ÍBR Miðnæturhlaup í Laugardalnum í kvöld
Miðnæturhlaup í Laugardalnum í kvöld Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 23. júní 2011 09:28

Miðnæturhlaup Powerade fer fram í Laugardalnum í kvöld. Hlaupið er einn af viðburðum Reykjavíkurmaraþons en framkvæmdaaðilar eru frjálsíþróttadeildir Ármanns og Fjölnis.

Forskráningu í hlaupið á netinu lauk í gær kl.17 en þá höfðu 1.040 hlauparar skráð sig sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Þeir sem ekki skráðu sig á netinu eiga enn möguleika á að vera með því  hægt verður að skrá sig á staðnum, við gamla inngang Laugardalslaugarinnar, frá kl.16:00-21:30 í dag.

Í Miðnæturhlaupi Powerade er boðið uppá þrjár vegalengdir 3 km skemmtiskokk án tímatöku og 5 km og 10 km hlaup með tímatöku. 5 og 10 km hlaupinu eru ræst klukkan 22 en 3 km hlaupið klukkan 22:10. Nánari upplýsingar um Miðnnæturhlaup Powerade má finna á heimasíðu hlaupsins.

Þau sem ætla að taka þátt í hlaupinu eru hvött til að mæta snemma í Laugardalinn því það verður mikið um að vera. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við íþróttahreyfinguna og Ólympíufjölskyldu ÍSÍ halda nefnilega upp á Ólympíudaginn í dag. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan þann 23. júní. Dagskráin í Laugardalnum hefst klukkan 19 og er hægt að nálgast upplýsingar um hana á fésbókarsíðu Ólympíudagins.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 23. júní 2011 09:43
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700