| Smáþjóðaleikarnir í Liechtenstein |
|
|
| Miðvikudagur, 01. júní 2011 11:24 |
|
Smáþjóðaleikarnir hófust í Liechtenstein í gær. Um er að ræða fjölgreinamót ríkja í Evrópu með færri en eina milljón íbúa. Mótið er haldið annað hvert ár undir verndarvæng Ólympíuhreyfingarinnar og uppfyllir allar kröfur og hefðir ólympískra leika. Í ár sendir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samvinnu við sérsamböndin um 140 manna hóp til þátttöku. Í hópnum er mikið af afreksfólki úr Reykjavík. Smellið hér til að skoða nafnalista íslenska hópsins. Stofnuð hefur verið facebook síða þar sem hægt er að fylgjast með gengi íslensku þátttakendanna. Smellið hér til að fylgjast með á facebook og hér til að skoða heimasíðu leikanna. Árið 2015 verða Smáþjóðaleikarnir haldnir í Reykjavik.
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 03. júní 2011 11:11 |