Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykjavík í 2.sæti í frjálsum íþróttum stúlkna
Reykjavík í 2.sæti í frjálsum íþróttum stúlkna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 26. maí 2011 22:48

Reykjavíkurúrval stúlkna í frjálsum íþróttum varð í 2.sæti á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Reykjavík þessa dagana. Keppni lauk seinni partinn í dag en dagskrá lýkur þó ekki formlega fyrr en á morgun föstudag þegar allir þátttakendur halda heim á leið.

Reykvísku frjálsíþróttastúlkurnar fengu 3280,5 stig í heildar stigakeppninni og urðu í öðru sæti á eftir liði Helsinki sem fékk 3501,8 stig. Í dag var keppt í 800 metra hlaupi þar sem Melkorka Embla Hjartardóttir náði bestum árangri reykvísku stúlknanna og varð í öðru sæti á tímanum 2:29,89. Einnig var keppt í hástökki þar sem Rakel Birna Björnsdóttir náði lengst reykvísku stúlknanna þegar hún stökk 148 cm og varð í 4.-5.sæti.

Það var líka keppt í 800 metra hlaupi drengja í frjálsíþróttakeppni dagsins en þar náði Valdimar Ingi Jónsson bestum árangri reykvísku strákanna þegar hann hljóp á tímanum 2:16,55 og varð í 3.sæti. Í langstökki drengja varð Antthony Þórir Santos í 2.sæti þegar hann stökk 5,34 metra. Reykjavíkurúrval drengja í frjálsum íþróttum endaði í 5. og síðasta sæti stigakeppninnar þrátt fyrir að vera eiga fulltrúa í einum af þremur efstu sætunum í öllum keppnisgreinum mótsins.

Reykjavíkurúrval stúlkna í handknattleik endaði í 4.sæti á mótinu. Reykvísku stelpurnar spiluðu marga góða leiki og voru þeir allir jafnir og spennandi. Þær gerðu tvö jafntefli og töpuðu tveimur leikjum. Tap leikirnir töpuðust með aðeins eins og tveggja marka mun og vantaði því lítið uppá að sigurinn félli þeirra megin í öllum viðureignum.

Hægt er að skoða nánari úrslit Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna með því að smella hér.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700