| Vel heppnað Grunnskólamót |
|
|
| Föstudagur, 27. maí 2011 10:35 |
|
Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlanda lauk í morgun en það hefur verið í gangi síðan á þriðjudag. Þátttakendur eru nú á heimleið eftir vel heppnað og skemmtilegt mót. Reykvísku krakkarnir stóðu sig vel á mótinu og náðu sumir í verðlaunasæti. Reykjavíkurúrval drengja í knattspyrnu sigraði mótið og Reykjavíkurúrval stúlkna í frjálsum íþróttum varð í öðru sæti. Smellið hér til að skoða nánari úrslit og hér til að skoða myndir frá mótinu.
Lið Reykjavíkur sem tók þátt í Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlanda 2011.
|