| Reykjavík sigraði í knattspyrnu |
|
|
| Fimmtudagur, 26. maí 2011 16:08 |
|
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda hófst í Reykjavík á þriðjudag, tveimur dögum seinna en áætlað var vegna eldgossins í Grímsvötnum. Mótinu lýkur í dag og endar dagskráin á sundlaugarpartýi í Laugardalslauginni. Knattspyrnukeppninni var að ljúka rétt í þessu þar sem lið Reykjavíkur sigraði. Keppnin var mjög jöfn og höfðu Reykjavík og Helsinki jafn mörg stig að henni lokinni. Úrslitin réðust því á markatölu þar sem aðeins eitt mark skildi liðin að. Reykjavíkurliðið er skipað fimmtán drengjum úr íþróttafélögum og grunnskólum í Reykjavík á aldrinum 13-14 ára. Þjálfari liðsins er Valdimar Stefánsson. Smellið hér til að skoða lista yfir leikmenn liðsins. Úrslit í handknattleik og frjálsum íþróttum liggja fyrir síðar í dag.
|
| Síðast uppfært: Föstudagur, 27. maí 2011 10:35 |