| Grunnskólamótið gengur eins og í sögu |
|
|
| Miðvikudagur, 25. maí 2011 19:55 |
|
Óhætt er að segja að Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Reykjavík þessa dagana gangi eins og í sögu. Vegna eldgossins í Grímsvötnum komu erlendu þátttakendurnir rúmum sólarhring of seint til landsins og því fór dagskrá mótsins öll úr skorðum. Starfsmenn ÍBR, ÍTR og íþróttafélaganna í Reykjavík hafa staðið sig frábærlega í að aðlaga mótið að breytum tímaramma og því gengur allt vel. Keppt var í 60 m hlaupi, hástökki pilta og langstökki stúlkna í frjálsíþróttakeppninni í dag. Thelma Lind Kristjánsdóttir stóð sig best reykvísku stúlknanna en hún varð í öðru sæti í langstökki þegar hún stökk 5,08 ásamt því að verða í öðru sæti í 60 m hlaupi á tímanum 8,26. Antthony Þórir Santos náði bestum árangri reykvísku strákanna en hann stökk 152 cm í hástökkinu og varð í fjórða sæti. Ekki náðist að klára alla riðla í 60 m hlaupi drengja og liggja úrslit því ekki fyrir fyrr en á morgun. Reykjavíkurúrval drengja í knattspyrnu lék einn leik í dag en það var gegn liði Stokkhólms. Reykvísku strákarnir sigruðu leikinn örugglega 3-0. Gabríel Agnarsson skoraði tvö mörk í leiknum og Daði B. Halldórsson eitt. Á morgun mæta strákarnir liði Osló en það er jafnframt síðasti leikur þeirra á mótinu. Handknattleiksstúlkurnar töpuðu naumlega fyrir liði Stokkhólms í dag. Svíarnir unnu leikinn sem var ótrúlega jafn og spennandi 25-24. Síðasti leikur stelpnanna er á morgun en þá mæta þær liði Osló. Myndin hér fyrir neðan er af reykvísku frjálsíþróttastelpunum. Búið er að bæta þessari mynd og fullt af öðrum nýjum myndum frá deginum í dag við í myndasafn mótsins. Smellið hér til að skoða myndirnar. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. maí 2011 22:21 |