Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykvísku krökkunum gekk vel í dag
Reykvísku krökkunum gekk vel í dag Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 24. maí 2011 16:24

Þá er keppni lokið á fyrsta degi Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna sem fram fer í Reykjavík þessa dagana. Dagskrá fór örlítið úr skorðum vegna seinkanna á flugi í morgun en að öðru leiti hefur allt farið vel.

Reykvísku krakkarnir stóðu sig vel í dag og náðu flottum árangri í keppnum dagsins. Handknattleiksstúlkurnar gerðu tvö jafntefli 13-13 gegn Kaupmannahöfn og 15-15 gegn Helsinki. Knattspyrnustrákarnir sigruðu Kaupmannahöfn 4-1 og gerðu jafntefli við Helsinki 3-3. Í frjálsum íþróttum var keppt í kúluvarpi í dag þar sem bæði Antthony Þórir Santos og Thelma Lind Kristjánsdóttir urðu í 2.sæti. Nánari úrslit má nálgast með því að smella hér.

Keppni hefst aftur í fyrramálið kl.9:00. Smellið hér til að skoða dagskrá mótsins.

Ljósmyndarar mótsins þeir Atli og Gunnar tóku mikið af skemmtilegum myndum í dag sem hægt er að skoða með því að smella hér. Á myndinni hér að neðan má sjá kröftugan varnarleik reykvísku stúlknanna.

 

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700