| Keppni hafin |
|
|
| Þriðjudagur, 24. maí 2011 11:11 |
|
Allir erlendu þátttakendurnir á Grunnskólamóti Höfuðborga Norðurlandanna eru komnir til landsins. Þrátt fyrir að veðurguðirnir séu okkur ekki sérstaklega hliðhollir og blási stífum vindi á þátttakendur hefur allt gengið vel sem af er móti. Keppni hófst í morgun kl.9:30. Í knattspyrnu mætti Reykjavíkurúrval drengja liði Kaupmannahafnar þar sem Reykjavík sigraði 4-1. Þeir Stefán B. Hjaltested og Davíð B Halldórsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Reykjavík. Fyrir lið Kaupmannahafnar skoraði Mathias Domincussen. Reykjavíkurúrvalið í handknattleik stúlkna lék einnig gegn Kaupmannahöfn og endaði sá leikur með jafntefli 13-13. Keppni lýkur um kl.14:30 í dag en þá er öllum þátttakendum boðið í Ráðhús Reykjavíkur þar sem mótið verður formlega sett. Í kvöld verður svo sett upp Skólahreystikeppni milli borganna. Meðfylgjandi mynd var tekin af tveimur hressum stelpum frá Osló rétt í þessu til að sýna foreldrum erlendu gestanna að hér í Reykjavík er ekki öskurok og óþarfi að ganga um með grímur.
|
| Síðast uppfært: Þriðjudagur, 24. maí 2011 16:24 |