Forsíða Fréttasafn ÍBR Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda - Dagskrá
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda - Dagskrá Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 23. maí 2011 22:54

Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda hefst í Reykjavík á morgun, tveimur dögum seinna en áætlað var vegna eldgossins í Grímsvötnum. Seinni partinn í dag hefur verið unnið hörðum höndum við að endursmíða dagskrá mótsins. Smellið hér til að skoða nýja dagskrá. Keppt verður í frjálsum íþróttum og handknattleik í Laugardalshöll en knattspyrnan verður leikin í Egilshöllinni í Grafarvogi. Athugið að þetta eru breyttir leikstaðir, knattspyrnan og frjálsar íþróttir áttu að fara fram úti en keppnisgreinarnar voru færðar inn vegna möguleika á öskuryki í loftinu og óheppilegrar veðurspár.

Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda hefur verið haldið árlega frá árinu 1948. Reykjavík tók fyrst þátt í leikunum árið 2006 í Helsinki og er nú í fyrsta skipti gestgjafi mótsins. Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur veg og vanda að skipulagningu og framkvæmd mótsins fyrir hönd Reykjavíkurborgar í samvinnu við íþróttafélögin í Reykjavík.

Keppt er í þremur íþróttagreinum á mótinu; knattspyrnu drengja, handknattleik stúlkna og frjálsum íþróttum drengja og stúlkna. Þátttakendur koma frá Helsinki,Kaupmannhöfn, Osló og Stokkhólmi auk Reykjavíkur. Hver borg er skipuð 47 manna hópi; 41 unglingur á aldrinum 12-14 ára, 4 þjálfarar og 2 fararstjórar. Hóparnir gista á Farfuglaheimilinu í Laugardal. Reykvísku unglingarnir koma úr 19 grunnskólum í Reykjavík og 10 íþróttafélögum. Lista yfir reykvísku þátttakendurnar má finna með því að smella hér.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700