| Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda hefst á morgun |
|
|
| Mánudagur, 23. maí 2011 15:28 |
|
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda sem átti að hefjast á sunnudag hefst á morgun þriðjudaginn 24.maí. Erlendu þátttakendurnir komust ekki til landsins á sunnudag útaf eldgosinu í Grímsvötnum en nú er ljóst að þeir komast til landsins seint í kvöld og nótt. Reykvísku þátttakendurnir eiga að mæta í Farfuglaheimilið í Laugardal kl.8:00 í fyrramálið og vera búin að borða morgunmat. Stuttu síðar fer dagskrá mótsins í gang af fullum krafti. Starfsmenn Íþróttabandalagsins eru að endurgera dagskrá mótsins þessa stundina og verður uppfærð dagskrá birt hér á vefnum í kvöld.
|