Forsíða Fréttasafn ÍBR Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda - engin dagskrá á morgun
Grunnskólamót Höfuðborga Norðurlanda - engin dagskrá á morgun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Sunnudagur, 22. maí 2011 17:16

Tæplega 200 erlendir gestir áttu að koma til Reykjavíkur í dag vegna Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna. Vegna lokunar Keflavíkurflugvallar í kjölfar eldsumbrotanna í Grímsvötnum hafa gestirnir ekki komist til landsins í dag og er óvíst hvort að þeir fái flug á morgun verði á annað borð flogið til landsins. Dagskrá mótsins er því farin verulega úr skorðum og ljóst að hvorki opnunarhátíð né keppni fer fram á morgun mánudag.

Það ætti að skýrast seinni partinn á morgun hvort mögulegt verður fyrir gestina að komast til landsins. Ef hóparnir komast til landsins á morgun eða þriðjudagsmorgun verður mótahaldið fært aftur um einn dag. Keppni mun þá hefjast á þriðjudag og stefnt að því að ljúka dagskrá á laugardag. Það verður því ekkert af því að reykvísku keppendurnar hittist í Laugardalinn á morgun mánudag kl.12:00 eins og áður hafði verið auglýst en af því gæti þó orðið sólarhring síðar eða á þriðjudag.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700