| Sumargjafir til grunnskólabarna |
|
|
| Fimmtudagur, 12. maí 2011 11:10 |
|
Af gömlum og góðum íslenskum sið fagnar Íþróttabandalag Reykjavíkur sumarkomunni og gefur börnum í grunnskólum Reykjavíkur sumargjafir. Sumargjafaverkefnið hófst árið 2005 þegar nemendur í 2.bekk fengu sippuband. Það hefur síðan verið endurtekið ár hvert og hafa þrír árgangar bæst við í hóp þeirra sem fá gjafir frá Íþróttabandalaginu. Tilgangur sumargjafanna er að gleðja reykvísk börn og um leið hvetja þau til að hreyfa sig og leika sér með tilvísun í íþróttir almennt. Það er von Íþróttabandalags Reykjavíkur að börnin verði ánægð með gjafirnar og að kennarar og foreldrar þeirra hvetji þau til að nota þær. Börn í öðrum bekk fengu sippuband ásamt litlum bæklingi með hugmyndum af leikjum og æfingum. Allir þriðju bekkir fengu þrjá bolta til að nota í frímínútum. Þá fengu fimmtu bekkingar sundkort sem gildir í þrjú skipti í sundlaugar Reykjavíkur ásamt bækling með hugmyndum að sundleikjum og upplýsingum um opnunartíma sundlauganna í Reykjavík. Alls fengu 1350 börn sippubönd, 1438 börn sundkort og 74 bekkjadeildir bolta frá ÍBR þetta árið. Sumargjöfunum var dreift til skólanna í byrjun maí. 4.bekkingar fengu líka gjöf á þessu skólaári því í tengslum við fyrsta vetrardag þann 24.október síðastliðinn voru þeim afhendir boðsmiðar á skauta, samtals 1.365 nemendur.
|