| Hjólað í vinnuna |
|
|
| Þriðjudagur, 03. maí 2011 16:00 |
|
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna fer fram dagana 4. – 24. maí næst komandi. Síðastliðin átta ár hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið fyrir Hjólað í vinnuna. Landsmenn hafa tekið hvatningar- og átaksverkefninu gríðarlega vel og hefur þátttakendum fjölgað um rúmlega 1.670 %, úr 533 árið 2003 í 9.451 árið 2010. Hjólað í vinnuna skapar létta stemningu og eykur félagsandann hjá starfsmönnum á vinnustöðum. Markmið Hjólað í vinnuna hefur verið frá upphafi að vekja athygli fólks á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Við hvetjum þig til að fá samstarfsfólk þitt með í Hjólað í vinnuna 2011 og taka þar með þátt í því að hvetja landsmenn til heilsusamlegri, umhverfisvænni og hagkvæmari samgöngumáta. Nánari upplýsingar um Hjólað í vinnuna og skráningu er að finna á hjoladivinnuna.is og eins veitir Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, allar nánari upplýsingar í s: 514 4000, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
|