Forsíða Fréttasafn ÍBR Góð samstaða á þingi ÍBR
Góð samstaða á þingi ÍBR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 29. apríl 2011 19:44

45.þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur lauk um sjö leitið í kvöld. Þingið gekk vel fyrir sig og voru þingfulltrúar mjög samhljóma um þær tillögur sem lágu fyrir. Mikill baráttuhugur var í þingfulltrúum sem samþykktu meðal annars nokkrar áskoranir til yfirvalda.

Tvær áskoranir til ríkisvaldsins voru samþykktar á þinginu. Skorað var á ríkisvaldið að hefja nú þegar stuðning við íþróttafólk sem líklegt er til að komast á Ólympíuleikana í London 2012 sem nemur fullum listamannalaunum. Þá var einnig skorað á ríkisvaldið að framkvæma sem fyrst könnun á hagrænum áhrifum íþrótta líkt og nýlega var gert fyrir aðrar skapandi greinar.

Íþróttafélögin í Reykjavík komu til móts við borgina í efnahagshruninu með því að taka á sig lækkun frá áður gerðum samningum. Á þinginu var samþykkt áskorun til borgaryfirvalda um að endurnýja samstarfssamninga við félögin og ÍBR. Í áskoruninni kom fram að nauðsynlegt væri að tryggja rekstrargrundvöll félaganna svo þjónustunni við allan þann mikla fjölda iðkenda sem stunda íþróttir á þeirra vegum væri ekki stefnt í voða. Þá var skorað á borgina að taka án tafar upp styrki til reksturs íþróttaskóla íþróttafélaganna í yngstu bekkjum grunnskóla og stuðning við afreksíþróttir í gegnum Afreks- og styrktarsjóð Reykjavíkur.

Líkt og undanfarin þing var samþykkt að halda áfram að sækja um aðild að Ungmennafélagi Íslands. Stjórn Íþróttabandalagsins hefur ítrekað sótt um aðild að UMFÍ undanfarin ár en ávalt fengið höfnun.

Ingvar Sverrisson var einn í framboði til formanns Íþróttabandalagsins og því sjálfkjörinn til áframhaldandi formennsku. Í stjórn voru kosin þau Björn Björgvinsson, sem kemur nýr inní stjórn, Gígja Gunnarsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Viggó H. Viggósson, Þórdís Gísladóttir og Örn Andrésson. Í varastjórn voru kjörnar þær Guðrún Ósk Jakobsdóttir og Bjarnveig Guðjónsdóttir, en Bjarnveig kemur ný inní stjórn ÍBR. Tveir stjórnarmenn fráfarandi stjórnar gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það voru þeir Haraldur Baldursson og Jónas Sigurðsson. Þeim eru þökkuð góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík.

Samþykktir þingsins verða birtar hér á vef ÍBR á næstu dögum.

Síðast uppfært: Föstudagur, 29. apríl 2011 22:02
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700