| Lokað vegna framkvæmda |
|
|
| Miðvikudagur, 13. apríl 2011 10:15 |
|
Dagana 18.-20.apríl næstkomandi verður skrifstofa Íþróttabandalags Reykjavíkur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal lokuð vegna framkvæmda. Um er að ræða síðustu þrjá virka daga fyrir páska. Þessa dagana standa yfir miklar framkvæmdir á húsnæði ÍBR, ÍSÍ og Lottó í Íþróttamiðstöðinni en verið er að byggja lyftuhús sunnanmegin við húsið. Þegar framkvæmdum lýkur verður gengið inn í húsið að sunnanverðu en inngangi að norðanverðu verður lokað. Í framtíðinni er svo hugmyndin að aðalinngangur Íþróttamiðstöðvarinnar verði sunnamegin þannig að öll umferð kemur inn í miðstöðina um einn og sama innganginn en ekki þrjá eins og er í dag. Dagana sem skrifstofan er lokuð verður stigahús brotið og því ekki hægt að vera í byggingunni vegna hávaða. Starfsmenn Íþróttabandalagsins verða þó flestir í vinnu og hægt að ná í þá í farsíma. Upplýsingar um starfsmenn og farsímanúmer þeirra má nálgast með því að smella hér. |