| Frjálsíþróttadeild ÍR vekur athygli |
|
|
| Mánudagur, 04. apríl 2011 08:56 |
|
Um helgina fór fram fyrsta svonefnda félagaráðstefna Frjálsíþróttasambands Evrópu (European Athletics Club Conference) sem haldin var í Frankfurt í Þýskalandi. Á ráðstefnuna var boðið tveimur til fimm fulltrúum frá öllum 50 aðildarlöndum Frjálsíþróttasambands Evrópu, samtals um 200 fulltrúum. Frá Íslandi sóttu ráðstefnuna þau Benóný Jónsson frá HSK, Sússanna Helgadóttir frá FH og Þórdís Gísladóttir frá ÍR en hún var einn af frummælendum ráðstefnunnar. Fulltrúum frá fjórum löndum var boðið að kynna starf, stefnu og uppbyggingu frjálsíþróttafélags sem náð hefur eftirtektarverðum árangri á undanförnum árum. Starf, skipulag, árangur, vaxandi stærð og umfang Frjálsíþróttadeildar ÍR hefur vakið verðskuldaða athygli hjá stjórnendum Frjálsíþróttasambands Evrópu að undanförnu og þeir völdu ÍR sem eitt af fjórum félögum í Evrópu sem kynnt var sérstaklega á ráðstefnunni. Þetta er gífurlega mikil viðurkenning fyrir starfið sem unnið hefur verið hjá ÍR á undanförnum árum . Þórdís flutti fyrirlestur sinn í gær og vakti framlag Íslands gríðarlega athygli. Ljóst var að áhuginn var mikill og í fyrirspurnatíma að loknum kynningum allra frummælendanna var nær öllum spurningum úr sal beint til Þórdísar. Að loknum fyrirspurnartímanum biðu fulltrúar frá fjölda landa í biðröðum eftir að spyrja Þórdísi nánar um uppbyggingu frjálsíþróttastarfsins hjá ÍR. Stuttu eftir erindið í gær var Þórdís svo boðuð á einkafund með forseta Frjálsíþróttasambands Evrópu til að skýra honum nánar frá þjálfunarstefnu, uppbyggingu og skipulagi Frjálsíþróttadeildar ÍR. Þórdís Gísladóttir hlaut sem kunnugt er fyrstu kvenleiðtogaverðlaun Frjálsíþróttasambands Evrópu árið 2009. Frétt af www.ir.is.
|