Forsíða Fréttasafn ÍBR Ótrúleg flautukarfa 7.fl KR
Ótrúleg flautukarfa 7.fl KR Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 31. mars 2011 10:42

Hinn þrettán ára gamli Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði ótrúlega flautukörfu þegar lið hans, KR, tryggði sér Íslandsmeistaratitil í 7. flokki drengja í körfubolta síðasta laugardag. Leikurinn fór fram í DHL-höllinni í Vesturbæ Reykjavíkur og voru það Keflvíkingar sem mættu KR-ingum. Aðdragandi körfunnar var sá, að Þórir fékk boltann nokkra metra frá eigin körfu þegar aðeins sekúndur voru eftir af leikfjórðungnum. Þórir fleygði boltanum upp í loft og eftir að hann hafði svifið yfir bróðurpart vallarins hafnaði hann í netinu.

Óhætt er að segja að afrek Þóris sé aðdáunarvert. Hér er myndband af flautukörfunni

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 31. mars 2011 10:54
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700