|
Skíðamót Íslands - Bláfjöllum 2011 |
|
|
|
Miðvikudagur, 30. mars 2011 13:57 |
|
Skíðamót Íslands 2011 verður sett í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun fimmtudaginn 21.mars kl.20. Á skíðamótið mæta allir bestu skíðamenn landsins og eru skíðaáhugamenn hvattir til að fjölmenna í fjöllin og fylgjast með.
Keppni hefst kl.17:30 á fimmtudag en þá verður keppt í sprettgöngu og mótið síðan sett stuttu síðar. Á föstudag er keppt í stórsvigi og göngu en á laugardag í svigi og göngu. Keppni lýkur á sunnudag en þá er keppt í samhliðasvigi og boðgöngu.
Það er Skíðaráð Reykjavíkur sem er framkvæmdaaðili mótsins og koma sjálfboðaliðarnir sem vinna við mótið úr skíðadeildunum í Reykjavík.
Smellið á myndina hér til hliðar til að skoða nákvæma dagskrá mótsins.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. mars 2011 16:04 |