|
Afreksíþróttir og framhaldsskóli |
|
|
|
Þriðjudagur, 22. mars 2011 14:03 |
|
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur gefið út bækling um framhaldsskólana í Reykjavík og hvernig þeir koma til móts við íþróttafólk. Markmiðið með útgáfu bæklingsins er að upplýsa ungt íþróttafólk í Reykjavík og foreldra þeirra um helstu þætti sem taka þarf tillit til svo íþróttaiðkun og nám fari sem best saman.
Hérlendis hafa nokkrir framhaldsskólar reynt að mæta þörfum íþróttafólks en með mjög misjöfnum hætti, sbr. Borgarholtsskóli, Flensborgarskóli, Fjölbrautaskólarnir í Breiðholti, á Suðurnesjum og Suðurlandi. Í þessum skólum hefur nemendum gefist kostur á að stunda sínar æfingar á skólatíma í stað þess að mæta í almenna íþróttatíma og þannig hafa þeir getað aukið æfingamagnið án mikillar fyrirhafnar.
Æfingamagn verður að aukast á þessum aldri ef árangur á að nást en álagið á einstaklinginn má þó ekki margfaldast á einu bretti, þ.e. æfingar og keppni, félagslíf og svo sjálft námið sem aldrei má vanrækja. Að mörgu er að hyggja svo ungt afreksíþróttafólk geti sinnt öllu þessu á farsælan hátt.
Smellið á forsíðu bæklingsins til að skoða hann á pdf formi.
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 25. mars 2011 11:35 |