Forsíða Fréttasafn ÍBR Fyrirlestur um rathlaup og hlaupaþjálfun
Fyrirlestur um rathlaup og hlaupaþjálfun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 08. mars 2011 19:53

Rathlaupsfélagið Hekla, Íþróttasamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur bjóða til fyrirlestra um rathlaup og hlaupaþjálfun miðvikudaginn 9. mars 2011.

Í mars koma tveir norskir rathlauparar til landsins í tengslum við Öskudagsráðstefnu Reykjavíkurborgar og verkefnið „Rathlaup ný skólaíþrótt“. Í tilefni af þessu mun Rathlaupsfélagið Hekla, ÍSÍ og ÍBR bjóða til fyrirlestra í húsnæði ÍSÍ 9. mars. Haldnir verða tveir fyrirlestrar þar sem fjallað verður um rathlaupsíþróttina (orienteering) og um þjálfun og æfingar keppnisfólks í hlaupum.

Fyrirlestrarnir munu meðal annars fjalla um möguleika ýmissa íþróttagreina og íþróttamanna til að nýta sér möguleika rathlaups til þjálfunar. Þá verður sérstaklega fjallað um þjálfun fólks á ólíkum aldri og hvernig hægt er að byggja íþróttina upp eina sér eða í tengslum við aðrar íþróttir.

Fyrirlestrarnir hefjast klukkan 20:00 og verða í húsnæði ÍSÍ í Laugardalnum. Nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.

Aðgangur er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir.

 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700