|
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu |
|
|
|
Fimmtudagur, 03. mars 2011 09:34 |
|
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla í knattspyrnu fer fram sunnudaginn 6.mars í Egilshöllinni og hefst kl.19:15. Þar mætast félög sem oft hafa att kappi í gegnum árin, KR og Valur. Vesturbæingar hafa titil að verja.
Aðgangur er ókeypis á þennan úrslitaleik en sérstakir heiðursgestir leiksins verða tveir gamalkunnir knattspyrnukappar úr þessum félögum, þeir Hörður Felixson og Elías Hergeirsson. Þeir munu svo afhenda Reykjavíkurmeisturum ársins 2011 sigurverðlaunin að leik loknum.
Reykjavíkurmót karla í knattspyrnu er haldið af Knattspyrnuráði Reykjavíkur. Smellið hér til að skoða úrslit leikja í undanúrslitum.
|