| Sumarliðar 2011 |
|
|
| Mánudagur, 28. febrúar 2011 15:27 |
|
Líkt og undanfarin ár geta félög í Reykjavík sótt um að fá sumarliða til starfa með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum fyrir ungt fólk í Reykjavík. Þau félög sem áhuga hafa á að sækja um að fá ungt fólk til starfa á launum frá Reykjavíkurborg eru vinsamlegast beðin um að fylla út umsóknareyðublað og senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir mánudaginn 7. mars n.k. Við úthlutun verður horft til umfangs verkefna, möguleg samfélagsleg áhrif og önnur afleidd störf sem skapast gætu. Umsóknunum verður svarað 15. mars. Að gefnu tilefni er bent á að það fjármagn sem varið er til sumarliða kemur af lið ætluðum atvinnumálum ungs fólks og á að nýtast til að fjölga störfum fyrir 17 til 20 ára. Nánari upplýsingar veitir Lárus Rögnvaldur Haraldsson atvinnuráðgjafi hjá Hinu Húsinu Pósthússtræti 3-5. |