| Samanburður á íþróttum og menningu |
|
|
| Föstudagur, 04. febrúar 2011 11:03 |
|
Í ljósi umræðu sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum að undanförnu um samanburð á íþróttum og menningu er rétt að birta hluta úr ræðu Ingvars Sverrissonar, formanns Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem hann flutti 13.janúar síðastliðinn þegar Íþróttamaður Reykjavíkur var kjörinn. Í ræðu sinni kemur Ingvar inná hversu ósanngjarn þessi samanburður er. „Það er afar merkilegt hvernig íþróttum hefur verið stillt upp gegn menningu og listum í umræðum um fjárveitingar hins opinbera. Mér finnst mikilvægt að gera þetta örstutt að umræðuefni hér í dag. Í fyrsta lagi þá verður að taka fram að íþróttir eru menning. Íþróttir eru hluti af menningarsamfélaginu sem við búum í. Í öðru lagi sé ég ekki hvernig listir og íþróttir geta verið samkeppnisaðilar en sú umræða hefur gengið fjöllum hærra að hinn ofboðslegi „Lottó-gróði“ eigi að skiptast út til listasamfélagsins frekar en að fara í að kaupa leikmenn í fótboltalið. Þessi umræða er á slíkum villigötum að það er með ólíkindum. Lottóið er að skila ÍSÍ um 250 milljónum á ári auk þess sem framlag ríkisins til ÍSÍ er 330 milljónir á ári. Þetta gera tæpar 600 milljónir sem væri þá hægt að kalla ríkisstyrk ef menn leggja sig verulega fram. Á sama tíma er verið að setja í rekstur listastofnanna og styrki til listamanna 7 milljarða frá ríkinu. Ég sé ekki hvernig hægt er að bera þetta saman. Ef listamenn fengju af lottóinu líka, þá myndu þeir líklega ekki finna fyrir aukningunni á fjármunum til sín. Varðandi eyðslu þessara fjármuna þá get ég fullyrt að allir lottópeningarnir sem koma til reykvískra félaga fara í barna- og unglingastarf þeirra. Þannig eru reglur um skiptingu Lottótekna hjá Íþróttahreyfingunni í Reykjavík. Reykjavíkurborg gerir sem betur fer mun meira fyrir íþróttastarf en ríkið og eru fjármunir í íþróttir tæpir 3 milljarðar sem er um það bil það sama og fer í listir á vegum borgarinnar. Á næsta ári eru ólympíuleikar í London. Það er fátt sem sameinar íslenska þjóð eins og góður árangur á Ólympíuleikum. Skemmst er að minnast silfursins sem við unnum á síðustu leikum. Í dag er einn Íslendingur á svokölluðum A-styrk Afrekssjóðs sem er 160.000 krónur á mánuði til að undirbúa sig og greiða æfinga og keppnisferðir. 6 einstaklingar eru á B- styrk með 80.000 krónur á mánuði og 7 á C-styrk með 40.000 krónur á mánuði. Í ljósi hins óréttláta samanburðar við listir má geta þess að um 400 manns þiggja listamannalaun og að A-styrkþegi í íþróttum fær 60% af fullum slíkum launum. Þetta er ekki mjög sanngjarnt. Ég vil því gera það að tillögu minni að ríkið feli ÍSÍ að finna alla þá einstaklinga sem líklegir eru til að ná lágmörkum fyrir Ólympíuleikana á næsta ári og borgi þeim full listamannalaun í eitt og hálft ár fram að leikum. Hvort sem lágmörk nást eða ekki. Það væru góð skilaboð til okkar afreksfólks sem leggur á sig ómælda vinnu við að ná árangri í sínum greinum og standa sig sem fyrirmyndir fyrir börn og unglinga í okkar samfélagi.“ |
| Síðast uppfært: Föstudagur, 04. febrúar 2011 14:15 |