| Freydís Halla í öðru sæti í stórsvigi á HM |
|
|
| Miðvikudagur, 02. febrúar 2011 16:36 |
|
Hópurinn sem keppir á HM unglinga á skíðum í Crans Montana í Sviss. Freydís Halla Einarsdóttir er lengst til hægri á myndinni. Freydís Halla Einarsdóttir úr Ármanni endaði í 2. sæti í sínum aldursflokki á heimsmeistarmóti unglinga í stórsvigi sem var að ljúka í Crans Montana í Sviss. Samanlagður tími hennar úr tveimur ferðum var 2:45.15 en Petra Vlhova frá Slóvakíu vann í þessum aldursflokk, fædd 1994 og 1995, á tímanum 2:36.22. Þetta er frábær árangur hjá Freydísi Höllu en hún endaði í 37. sæti í heildarkeppninni. Þá kepptu einnig Katrín Kristjánsdóttir, Fanney Guðmundsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir en þær kláruðu ekki fyrri ferðina. Töluverð afföll voru í keppninni í dag en af 120 keppendum kláruðu aðeins 47 báðar ferðirnar.
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. febrúar 2011 16:44 |