| Reykvískir Íslandsmeistarar fengu viðurkenningu |
|
|
| Miðvikudagur, 02. febrúar 2011 12:26 |
|
Í gær fengu tæplega 600 Íslandsmeistarar úr Reykvískum íþróttafélögum viðurkenningu fyrir árangur sinn frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Um er að ræða þá sem urðu Íslandsmeistarar í efsta getustigi sinnar íþróttagreinar á árinu 2010, 13 ára og eldri. Athöfnin fór fram í Laugardalshöll en það voru Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, og Örn Andrésson, varaformaður ÍBR, sem afhendu íþróttafólkinu verðlaunin. Meðfylgjandi mynd er af Íslandsmeisturum Sundfélagsins Ægis. Fleiri myndir má finna með því að smella hér.
|