Forsíða Fréttasafn ÍBR Mikið fjör í Laugardalshöllinni í kvöld
Mikið fjör í Laugardalshöllinni í kvöld Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Sunnudagur, 16. janúar 2011 23:41

Reykjavíkurleikunum 2011 lauk formlega í kvöld í Laugardalshöll með glæsilegri lokahátíð. Sirkus Ísland var með frábært atriði og sigurpörin í danskeppni leikanna sýndu glæsileg tilþrif á dansgólfinu. Einnig komu þrír ungir drengir frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru og sýndu Michael Jackson dansa.

Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, og Gunnar Bragason, í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, veittu því íþróttafólki sem náði bestum árangri í hverri grein viðurkenningu á lokahátíðinni. Íþróttafólkið fékk glæsilegan verðlaunagrip sem búin er til úr hrauni úr Eyjafjallajökli ásamt gjöfum frá bakhjörlum leikanna Símanum, Orkuveitunni og Ölgerðinni. Smellið hér til að skoða lista yfir íþróttafólkið sem fékk viðurkenningu.

Kvöldið endaði svo á því að Páll Óskar Hjálmtýsson þeytti skífur af sinni alkunnu snilld sem fékk alla viðstadda til að koma út á dansgólfið. Áætlað er að á milli 800 og 1000 manns hafi verið á lokahátíð leikanna í Laugardalshöllinni í kvöld.

Þetta er fjórða árið í röð sem Reykjavíkurleikarnir fara fram en þeir eru skipulagðir af Íþróttabandalagi Reykjavíkur og íþróttafélögunum í Reykjavík. Leikarnir gengu einstaklega vel fyrir sig þetta árið en um 2.100 íþróttamenn tóku þátt og rúmlega þrjú hundruð gestir komu til landsins vegna þeirra.

Bestu íþróttamenn Reykjavíkurleikanna 2011

Síðast uppfært: Mánudagur, 17. janúar 2011 15:33
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700