| Opnunarhátíð Reykjavíkurleikanna í kvöld |
|
|
| Föstudagur, 14. janúar 2011 10:10 |
|
Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) hefjast formlega í kvöld með opnunarhátíð í Laugardalshöll. Hátíðin hefst kl.19:00 og er öllum opin. Á opnunarhátíðinni munu meðal annars Regína Ósk og Páll Óskar Hjálmtýsson koma fram. Á Reykjavíkurleikunum 2011 er keppt í tólf íþróttagreinum og fer keppnin öll fram í Laugardalnum og nágrenni hans. Als taka um 2100 keppendur þátt í keppninni en reiknað er með að á fjórða hundrað gesta komi til landsins vegna leikanna. Það er Íþróttabandalag Reykjavíkur og íþróttafélögin í Reykjavík sem standa að leikunum með stuðningi Reykjavíkurborgar og annara samstarfsaðila. |