| Ásdís Hjálmsdóttir er Íþróttamaður Reykjavíkur 2010 |
|
|
| Fimmtudagur, 13. janúar 2011 17:00 |
|
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhendi Ásdísi verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Hún fékk af þessu tilefni farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Ásdís Hjálmsdóttir er í 23.sæti heimslistans í spjótkasti. Hún náði frábærum árangri í grein sinni á árinu 2010. Henni bauðst að taka þátt í Demantamótum IAAF þar sem hún varð í 4.-6.sæti og komst auk þess í úrslit á Evrópumótinu. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur staðið fyrir vali á Íþróttamanni Reykjavíkur og er þetta því í 32.sinn sem Íþróttamaður Reykjavíkur er kjörinn. Smellið hér til að skoða lista yfir Íþróttamenn Reykjavíkur frá upphafi. Tíu aðrir afreksmenn fengu einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn á árinu 2010 í Höfða í dag sem afhendar voru af formanni Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvari Sverrissyni. Íþróttamennirnir eru þau:
Smellið hér til að skoða upplýsingar um árangur ofangreindra íþróttamanna á árinu 2010 en þau hlutu öll 50.000 króna styrk frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og viðurkenningarskjöld í Höfða í dag. |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 13. janúar 2011 17:37 |