Forsíða Fréttasafn ÍBR Reykjavíkurleikarnir eru um helgina
Reykjavíkurleikarnir eru um helgina Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 11. janúar 2011 14:55

Um næstu helgi fara Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) fram í fjórða sinn í Laugardalnum. Íþróttagreinunum sem taka þátt hefur fjölgað með hverju ári og er nú boðið uppá 12 greinar: fimleika, bogfimi, keilu, skylmingar, júdó, dans, borðtennis, listhlaup á skautum, frjálsar íþróttir, badminton, sund og kraftlyftingar.

Reiknað er með að á fjórða hundrað erlendra gesta komi til landsins vegna leikanna. Flestir eða um 120 koma til að taka þátt í eða styðja við keppendur í listhlaupi á skautum en einnig eru margir sem taka þátt í sundkeppninni eða tæplega 100 manns.

Það er Íþróttabandalag Reykjavíkur og íþróttafélögin í Reykjavík sem standa að Reykjavíkurleikunum með stuðningi borgarinnar og fleiri samstarfsaðila. Smellið hér til að skoða dagskrá leikanna og hér til að skoða heimasíðu þeirra.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. janúar 2011 15:37
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700