Forsíða Fréttasafn ÍBR Fræðsluerindi um afreksmál
Fræðsluerindi um afreksmál Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 10. janúar 2011 09:20

Í tilefni af Reykjavíkurleikum (Reykjavik International Games) bjóða Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur íþróttafólki og öðrum áhugasömum að hlýða á fjölbreytt fræðsluerindi í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum. Fræðsluerindin fimm verða flutt miðvikudaginn 12.janúar og fimmtudaginn 13.janúar en þau tengjast öll afreksíþróttum á einhvern hátt.

Miðvikudagurinn 12. janúar

Kl. 17:00 Samskipti íþróttahreyfingarinnar við fjölmiðla
Arnar Björnsson fjölmiðlamaður hjá Stöð 2.

Kl. 17:30 Umhverfi keppnisíþrótta
Viðar Halldórsson íþróttafélagsfræðingur.

Kl. 18:00 Umgjörð afreksmanna á Íslandi
Andri Stefánsson sviðstjóri afreksmála - ÍSÍ.

Kl. 18:30 Afreksmál fatlaðra
Ingi Þór Einarsson íþróttafræðingur og landsliðsþjálfari í sundi fatlaðra.

Fimmtudagurinn 13. janúar

Kl. 18:00 Afreksþjálfun þríþrautarmanna
Kathleen Smet þjálfunarlífeðlisfræðingur, afrekskona í þríþraut frá Belgíu og stjórnarmaður í evrópska þríþrautarsambandinu.


Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um umfjöllunarefni fræðsluerindanna.


Fræðsluerindin eru opin öllum á meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. janúar 2011 10:31
 
Borði
Borði
Borði
Borði

Viðburðir

Borði
Borði
Borði

Fræðsluefni

Borði
Borði

Frístundakort ÍTR

Myndir


ÍBR Engjavegi 6 104 Reykjavík Sími: 5353700