| Ferðastyrkir - síðasti umsóknardagur í dag |
|
|
| Mánudagur, 10. janúar 2011 09:19 |
|
Í dag, mánudaginn 10.janúar, er síðasti dagur til að sækja um ferðastyrki vegna ferða íþróttafélaga innanlands á árinu 2010. Hægt er að sækja um á vefslóðinni http://ferdastyrkir.isi.is/ibr/. Öll íþróttafélög í landinu sækja um ferðastyrki til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á áðurnefndu vefsvæði. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur samið við ÍSÍ um að fá aðgang að umsóknum íþróttafélaganna í Reykjavík til að minnka vinnu félaganna við að sækja um ferðastyrki. Umsóknir sem þarna eru settar inn berast því bæði til ÍSÍ og ÍBR. Byrja þarf á því að stofna umsókn fyrir félagið eða deildina og síðan er hægt að byrja að færa inn ferðir. Aðeins er tekið á móti umsóknum á þessu vefsvæði og ekki er hægt að taka á móti þeim eftir daginn í dag. |