| Fjármál íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík |
|
|
| Mánudagur, 13. desember 2010 09:51 |
|
Stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur lýsir þungum áhyggjum yfir tillögum um niðurskurð til reksturs starfsemi íþróttafélaga í borginni. Í ársbyrjun 2008 voru undirritaðir samstarfssamningar milli félaganna, ÍBR og borgarinnar. Fjármunir til íþróttastarfsins sem áttu að vera tryggðir með þessum samningum hafa verið skornir verulega niður síðustu 2 ár auk þess sem verðbætur voru aftengdar í byrjun árs 2009 og hefur verið svo síðan. Íþróttahreyfingin í Reykjavík skilur þann vanda sem borgaryfirvöld glíma nú við í fjármálum borgarinnar og er tilbúin að leggja sitt af mörkum. Það er þó mikilvægt að borgarfulltrúar skilji mikilvægi þessa starfs og að þessi niðurskurður gildi aðeins næsta ár en svo hefjist uppbyggingarstarfið á ný. Föstudaginn 10.desember síðastliðinn var meðfylgjandi erindi sent frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur til allra borgarfulltrúa þar sem þessum áhyggjum er lýst. Smellið hér til að lesa erindið. |
| Síðast uppfært: Mánudagur, 13. desember 2010 10:16 |