| Forvarnardagurinn er í dag |
|
|
| Miðvikudagur, 03. nóvember 2010 09:21 |
|
Forvarnardagurinn verður haldinn í fimmta sinn í dag miðvikudaginn 3.nóvember í öllum grunnskólum landsins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands og valdi hann til samstarfs m.a. þrjú landssamtök æskufólks: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta. Eitt markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á forvarnargildi þess að börn og ungmenni starfi innan þeirra vébanda. Samtökin þrjú hafa sett upp netratleik sem er að finna á heimasíðu Forvarnardagsins. Markmið Net-ratleiksins er að vekja athygli nemenda á starfi þessara samtaka með því að fá þau til að heimsækja heimasíður þeirra sem og heimasíðu Forvarnardagsins, forvarnardagur.is. Glæsileg verðlaun eru í boði en þrír heppnir þátttakendur sem svara öllum spurningum netratleiksins rétt fá iPod touch að verðmæti 73.990 kr. Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna. Öll framkvæmd verkefnisins í skólanum er á vegum skólans samkvæmt leiðbeiningum frá verkefnisstjórn Forvarnardagsins. Fulltrúar frá íþróttafélögunum í Reykjavík heimsækja nokkra skóla í Reykjavík í dag og kynna sérstaklega íþróttastarfið og netratleikinn á forvarnardagur.is. |