| Unglingar eru ánægðir með íþróttafélögin í Reykjavík |
|
|
| Miðvikudagur, 27. október 2010 13:29 |
|
Rannsóknir og Greining hafa frá árinu 1992 framkvæmt rannsóknir á ungu fólki 10-20 ára. Í könnuninni þetta árið á meðal 8.-10.bekkinga var bætt við spurningum sem tengjast ánægju iðkenda og íþróttafélögunum í Reykjavík. Markmiðið var að fá sem gleggsta mynd af íþróttastarfinu í Reykjavík með það fyrir augum að bæta það og koma í veg fyrir óþarfa brottfall ungmenna úr íþróttastarfinu. Rannsóknin var unnin fyrir Íþróttabandalag Reykjavíkur með stuðningi ÍTR og ÍSÍ. Í hádeginu í dag voru helstu niðurstöður könnunarinnar kynntar af þeim Jóni Sigfússyni framkvæmdastjóra Rannsókna & Greiningar og Viðari Halldórssyni íþróttafélagsfræðingi. Þátttakendur könnunarinnar í ár voru nemendur í 8., 9. og 10.bekk nær allra grunnskóla á Íslandi og því um að ræða mjög marktækar niðurstöður. Það fer ekki á milli mála þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar að nemendur í 8.-10.bekk í Reykjavík eru mjög ánægðir með íþróttafélögin sín. 83% nemenda finnst gaman á æfingum og eru ánægð með íþróttafélagið sitt. 80% nemenda eru ánægð með þjálfarann sinn og 79% með æfingaaðstöðuna. Mjög lítill munur er á milli kynja en þó eru stúlkurnar ívið ánægðari en drengirnir. Þá sýna niðurstöðurnar einnig að þeir sem æfa 4 sinnum í viku eða oftar eru ánægðari en þeir sem æfa 1-3 sinnum í viku. Þegar nemendur sem sögðust vera hættir að stunda íþróttir voru spurðir hvað hafi orðið til þess að þeir hættu var helsta ástæðan sögð sú að þeir hreinlega misstu áhugann og að þeir hefðu ekki tíma fyrir iðkunina. Mjög fáir sögðu að ástæða þess að þeir hættu væri of mikill kostnaður, samkeppni eða of erfiðar æfingar. Ekki óvænt er sjálfsmynd þeirra sem iðka íþróttir í íþróttafélögunum í Reykjavík mun betri en þeirra sem gera það ekki og eykst hún eftir því sem viðkomandi stundar fleiri æfingar á viku samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Þá eru þeir sem stunda íþróttir í íþróttafélögunum í Reykjavík einnig ólíklegri til að reykja daglega, drekka áfengi og nota hass. Munn og neftóbaksnotkun hefur heldur aukist á Íslandi síðustu ár. Umræðan hefur gjarnan verið sú að íþróttafólk noti þessa tegund tóbaks meira en aðrir. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru þeir sem iðka íþróttir í Reykjavík ekki líklegri til að nota munn- og neftóbak heldur en þeir sem ekki iðka íþróttir. Eins og niðurstöður könnunar Rannsóknar & Greiningar á meðal nemenda í 8.-10.bekk sýna eru íþróttafélögin í Reykjavík að standa sig vel og sinna mikilvægu forvarnarstarfi. Innan vébanda Íþróttabandalags Reykjavíkur eru um 70 íþróttafélög. Fimmtán stærstu félögin fá niðurstöður á meðal sinna iðkenda sérstaklega kynntar á næstu vikum. Í framhaldinu getur hvert félag fyrir sig unnið í þeim þáttum sem niðurstöðurnar sína að þörf sé að bæta. Smellið hér til að skoða glærur frá kynningarfundinum í dag og hér til að skoða nánari upplýsingar um Ánægjuvogina, átaksverkefni Íþróttabandalags Reykjavíkur um að auka ánægju iðkenda. |
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. október 2010 15:23 |